Frétt

Óhugnaleg sjón. Ljósmynd: Tíðis / Birna Atladóttir.
Óhugnaleg sjón. Ljósmynd: Tíðis / Birna Atladóttir.

patreksfjordur.is | 29.10.2003 | 17:39Tófa ræðst á lömb í Breiðavík

Keran bóndi í Breiðavík í Vesturbyggð mátti horfa upp á þegar tófa gerði margítrekaðar tilraunir til að drepa lamb rétt hjá bænum. Keran segir það ótrúlegt að tófan skuli leggjast á lömb miðað við hversu margar tófur hann hafi fellt á þessu ári, en þær eru að nálgast 200 með yrðlingum síðan í vor. Frá þessu greinir á fréttavef Tíðis á Patreksfirði. Þar segir Keran bóndi það hreint með ólíkindum að tófan skuli leggjast á lömb og ekki velja sér þau smæstu sem fórnardýr. Menn geti spurt sig hversu hart tófan gengi nálægt dýraríkinu ef hún fengi að fjölga sér óhindrað. Þetta er þriðja lambið sem tófan ræðst á nú í haust og hefur hún hagað sér eins við öll lömbin, ég hef orðið að fella þau mis illa útleikin segir Keran.
„Það hafa liðið um tvær vikur á milli lamba og hef ég náð að fella hverja tófu fyrir sig þannig að um er að ræða þrjár tófur,“ segir Keran.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli