Frétt

Feðgarnir Haukur Benediktsson og Benedikt Birkir Hauksson saman á æfingu í gær.
Feðgarnir Haukur Benediktsson og Benedikt Birkir Hauksson saman á æfingu í gær.

bb.is | 24.06.2003 | 08:59Fótboltafeðgar léku saman í fyrsta sinn í opinberum kappleik

Í leik Boltafélags Ísafjarðar við Deigluna á laugardag léku feðgarnir Haukur Benediktsson og Benedikt Birkir Hauksson saman í fyrsta sinn í opinberum kappleik. Haukur, sem er nýlega orðinn 34 ára, lék allan leikinn að vanda en Benedikt syni hans var skipt inn á þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum. Benedikt er aðeins 14 ára og er yngsti leikmaður sem spilað hefur fyrir meistaraflokk Boltafélagsins. Eins og fram kom í fréttum í gær fór leikurinn 4-1, Ísfirðingum í vil.
halfdan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli