Frétt

Frá jarðborunum við Patreksfjörð. Mynd: Haukur Jóhannesson.
Frá jarðborunum við Patreksfjörð. Mynd: Haukur Jóhannesson.

bb.is | 15.01.2013 | 16:47Heitt vatn finnst við Patreksfjörð

„Þetta þýðir að hægt er að ná upp vatni, að minnsta kosti 32 gráðu heitu. Þá verður hægt að setja vatn á varmadælur og nýta fyrir Patreksfjörð,“ segir Haukur Jóhannesson jarðfærðingur, en í haust vann Haukur og fyrirtæki hans að hitastigulsborunum á Patreksfirði. Í ljós kom að talsvert magn af heitu vatni fannst á svæðinu, en uppstreymi holunnar sem geymir heita vatnið er undir svokölluðum Geirseyrarmúla, sem liggur austan við Patreksfjörð. Lítil 12 gráðu heit volgra hafði komið mönnum á sporið fyrir mörgum árum og en hún gaf til kynna að heita vatn væri að finna á svæðinu. Fyrst nú hefur heita vatnið fundist, sem teljast verður gleðitíðindi fyrir íbúa Patreksfjarðar.

Áður en boranirnar fóru fram í haust hafði verið gerð úttekt á yfirborðsjarðhita í Vesturbyggð og valkostum vegna heitavatnsöflunar í Vesturbyggð. Haukur hafði þegar unnið greinargerðir þar sem fram kom að velgja hafi verið á tveimur stöðum í landi Geirseyrar. Annars vegar við svonefndan Hjördísarlund, og hins vegar inn á Mikladal. Nú hefur vatnið fundist, en níu grunnar holur voru boraðar og fannst það í síðustu holunni.

„Nú er ekkert annað í stöðunni en að ná í stærri bor og ná vatninu úr holunni. Þarna náðum við 25 gráðu heitu vatni en við þurfum að bora dýpra til að ná heitara vatni,“ segir Haukur, en umræddar boranir eru eingöngu til þess fallnar að kanna hvar heita vatnið liggi.

Á Patreksfirði er fjarvarmaveita og rekur Orkubú Vestfjarða kyndistöð á staðnum. Það er kostnaðarsamt fyrir íbúa og fyrirtæki að hita hús sín upp með þeim hætti, og ljóst er að ef hægt verður að nýta nýfundinn jarðvarma mun mikill sparnarður hljótast af fyrir íbúa og fyrirtæki á svæðinu. Haukur segir líklegt að allt að 45 gráðu heitt vatn liggi í umræddri holu. „Efnafræðin segir okkur það.“ Haukur mun í næstu viku hefja jarðboranir í grennd við Tálknafjörð og leita að heitu vatni þar.

gudmundur@bb.is

bb.is | 18.05.13 | 10:43 Kræklingarækt og fiskeldi fara vel saman

Mynd með frétt „Það er mjög margt sem mælir með því að fiskeldi og kræklingarækt fari vel saman, meðal annars vegna þess að umhverfisáhrif sjókvíaeldis geta hugsanlega minnkað ef kræklingarækt er byggð upp samhliða uppbyggingu á sjókvíaeldi,“ segir Shiran Þórisson hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Verkefni ...
Meira

bb.is | 18.05.13 | 09:17Undirbúningurinn kominn á fullt

Mynd með frétt„Undirbúningurinn er kominn á fullt. Það verður stærra mót í ár, fleiri vellir, fleiri lið, fleira fólk og meira gaman. Við erum að vinna í að bæta umgjörðina, fá betri aðstöðu fyrir gesti og keppendur,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur Evrópumeistaramótsins ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 16:50Kaupir af Byggingarfélagi eldri borgara

Mynd með fréttSamningur um kaup Bolungarvíkurkaupstaðar á fyrstu hæð Aðalstrætis 20 ásamt hluta kjallara af Byggingarfélagi eldri borgara var undirritaður og handsalaður í gær. Hér er um að ræða stóran áfanga í nýja hjúkrunarheimilinu í Bolungarvík. Upphaflega var áformað að á fyrstu hæð ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 14:48Ríkið tekur fjármuni frá sjávarbyggðunum

Mynd með frétt„Augljóslega er verið að taka mikla fjármuni úr sjávarbyggðunum með sérstakri skattlagningu á eina atvinnugrein, sjávarútveginn. Ekkert af sérstaka veiðigjaldinu rennur hins vegar til sveitarfélaganna,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík, aðspurður hvort sveitarfélög þar sem útgerð er stunduð njóti einhvers ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 13:02Gjaldtaka styður uppbyggingu og öryggi

Mynd með frétt„Ég er fylgjandi því að tekið verði einhvers konar gjald af ferðafólki sem heimsækir ferðamannastaði til að standa undir uppbyggingu þar. Hins vegar er ég enn hlynntari því að unnið verði miklu markvissara að því að dreifa ferðamönnum víðar um landið. ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 10:55Styttist í komu fyrstu skipanna

Mynd með fréttFyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Ísafjarðar 6. júní nk., og með því 3.300 farþegar. Að sögn Guðmundar M. Kristjánssonar, hafnarstjóra Ísafjarðarhafna, er um nokkra aukningu að ræða frá fyrra sumri. Ekki er gert ráð fyrir aukningu á skipakomum á næsta ári ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 09:14Ósanngjarnt að taka eina grein út úr

Mynd með fréttSkoðanir varðandi hugsanlegt afnám hins sérstaka veiðigjalds eru mjög skiptar eins og m.a. hefur komið fram hér á vefnum, bæði hjá Óðni Gestssyni hjá Íslandssögu hf. á Suðureyri og Ólínu Þorvarðardóttur fráfarandi alþingismanni. Sigurður Viggósson framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði er ...
Meira

bb.is | 17.05.13 | 07:42Ný námsleið við Háskólasetrið

Mynd með fréttSamningur um nýja námsleið við Háskólasetur Vestfjarða verður undirritaður á aðalfundi Háskólasetursins sem fram fer á föstudag. Hin nýja námsleið nefnist „Sjávartengd nýsköpun“ og er samstarfsverkefni Háskólasetursins og Háskólans á Akureyri. Að sögn Peter Weiss, forstöðumanns Háskólasetursins, hefur lengi verið unnið ...
Meira

bb.is | 16.05.13 | 16:49Fjárhagsstaðan batnar verulega

Mynd með frétt„Þróunin í fjármálum bæjarins er mjög ánægjuleg,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík. „Hvað varðar lækkun skulda erum við núna búin að ná árangri sem við reiknuðum ekki með að ná fyrr en á árinu 2014.“ Rekstur kaupstaðarins gekk vel á ...
Meira

bb.is | 16.05.13 | 14:47Framlag Jóhönnu meira en nokkurs annars ráðherra

Mynd með frétt„Það lá við að maður vorkennndi sumum af núverandi og fyrrverandi forráðamönnum Hrafnseyrar þegar þeir voru að tjá sig um málefni staðarins á bb.is um daginn. Þeir snerust eins og skopparakringlur um sjálfa sig,“ segir Hallgrímur Sveinsson, fyrrum ábúandi og staðarhaldari ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi