bb.is | 12.09.2012 | 13:02Vilja skýringar á sölu Kaupfélagshússins
„Grundvallarspurningin er sú hvort að tilboðið sem metið var hæst, hafi í raun verið hæst. Ég tel yfirgnæfandi líkur á því að tilboð Óttars hafi verið hæst,“ segir Ásgeir Erling Gunnarsson fasteignasali. Ásgeir annaðist tilboð Óttars Överby í Austurveg 2 á Ísafirði, en tilboðið hljóðaði upp á 33 milljónir króna. Tilboðinu var ekki tekið, heldur tilboði Ágústs Gíslasonar, Flosa Kristjánssonar, Gísla Más Ágústssonar og Alfreðs Erlingssonar, sem hljóðaði upp á 35 milljónir. Ásgeir telur að ekki sé allt með felldu við söluna á húsinu og hefur óskað eftir skýringum frá bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar.Að sögn Ásgeirs, bendir allt til þess að tilboð þeirra Ágústs, Flosa, Gísla og Alfreðs hafi innihaldið fyrirvara, nefnilega að bílastæðin fyrir neðan Austurveg 2 fylgdu með í kaupunum. „Þetta er okkur tjáð að starfsmanni bæjarins. Í tilboði þeirra voru fyrirvarar um að bærinn breyti eignaskiptasamningi sínum og láti bílastæðin fylgja með tilboðinu. Tilboð Óttars var hinsvegar bara í eignina sjálfa án fyrirvara.“ Ásgeir telur að bílastæðin fyrir neðan eignina hljóti að vera meira virði en tvær milljónir króna.
„Ef að tilboði Óttars hefði verið tekið í vor hefði þetta verið greitt að fullu og engin eftirmálar. En nú stendur bærinn frammi fyrir því að hafa ekki fengið krónu greidda, það er ekki búið að þinglýsa neinum samningum, og bærinn stendur frammi fyrir þeirri kvöð að þurfa að láta af hendi bílastæði í hjarta bæjarins í einkaeigu.“
Ein aðalathugasemdin sem Ásgeir gerir við málsmeðferðina er sú að Ágúst Gíslason er einn þeirra sem kemur að kaupum hússins, en Ágúst er einnig einn kaupaðila að Hótel Ísafirði, sem keypt var á dögunum af Daníel Jakobssyni bæjarstjóra og fjölskyldu hans. „Einhverjum vikum eftir að bæjarstjórn samþykkir að ganga að kauptilboðinu í Kaupfélagshúsið kaupir bæjarstjórinn hótel ásamt Ágústi Gíslasyni. Kaupfélagshúsið var selt á sínum tíma með það fyrir augum að það yrði innrétt sem gistirými, en svo er hótelið selt og maður fer að hugsa hvort það eigi ekki bara að reka þetta allt saman sem eina heild. Þetta hljómar eins og ísfirsk einkavæðing og maður hreinlega skilur þetta ekki,“ segir Ásgeir.
„Við viljum fá þetta upplýst, og óskum eftir því að þetta mál verður tekið upp. Þetta er ekki eðlileg málsmeðferð. Ef að bærinn samþykkir tilboð Óttars fær hann greiddar 33 milljónir í stað þess að standa í þessu stappi sem hann hefur staðið í síðustu mánuði. Engum pappírum hefur verið þinglýst og því er enn hægt að breyta þessu,“ segir Ásgeir.
gudmundur@bb.is
bb.is | 20.05.13 | 10:44 Þjálfar hunda sem taka úr þvottavél
Meira
bb.is | 20.05.13 | 09:21Fjórir bátar Byggðasafnsins fá aðhlynningu í sumar
Meira
bb.is | 19.05.13 | 10:43Iðja fyrir fólk sem hefur lítið fyrir stafni
Meira
bb.is | 19.05.13 | 09:20Viðburðaríkt sumar að Hnjóti
Meira
bb.is | 18.05.13 | 10:43Kræklingarækt og fiskeldi fara vel saman
Meira
bb.is | 18.05.13 | 09:17Undirbúningurinn kominn á fullt
Meira
bb.is | 17.05.13 | 16:50Kaupir af Byggingarfélagi eldri borgara
Meira
bb.is | 17.05.13 | 14:48Ríkið tekur fjármuni frá sjávarbyggðunum
Meira
bb.is | 17.05.13 | 13:02Gjaldtaka styður uppbyggingu og öryggi
Meira
bb.is | 17.05.13 | 10:55Styttist í komu fyrstu skipanna
Meira