bb.is | 16.08.2012 | 13:01Búið í öðru hverju húsi á veturna
Mikill húsnæðisskortur er nú á Bíldudal, þrátt fyrir að fjölmörg hús í bænum standi auð. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. Fyrir nokkrum árum var atvinnuástand á Bíldudal í mikilli lægð og neyddust margir þá til að selja hús sín. Húsin sem þá voru keypt eru nú mörg hver notuð sem sumarhús, og því er erfitt að kaupa og leigja hús á Bíldudal fyrir þá sem þar vilja búa. Í Fréttablaðinu kemur fram að fimm manna fjölskylda leigi hús á Bíldudal sem nýlega hafi verið selt nýjum eiganda sem hyggist nota það sem sumarhús næsta sumar. Þá mun fjölskyldan neyðast til að flytjast burt nema ef glæði til á húsnæðismarkaði.Heimamenn er ósáttir og finnst það gremjulegt að nýtt fólk geti ekki flutt í plássið vegna húsnæðisskorts, á meðan annað hvert hús sé mannlaust á veturna. Á bilinu þrjátíu til fjörutíu hús í þorpinu eru notuð sem sumarhús, en 150 manns búa þar allt árið.
Að sögn Gísla Ægis Ágústssonar, íbúa á Bíldudal, er einnig mjög erfitt að leigja sér hús í bænum. Engin fjölskylda geti staðið í því að leigja einungis í nokkra mánuði í senn. Viðmælendur Fréttablaðsins voru þó á þeirri skoðun að það væri jákvætt að hús væru keypt í þorpinu, en það væri ankannalegt að þessi staða væri þó komin upp.
Bæjarins besta greindi frá því í gær að Þingeyri væri að breytast í sumarhúsabyggð, en sama ástand virðist vera á Bíldudal og á öðrum minni þéttbýliskjörnum á Vestfjörðum.
gudmundur@bb.is
bb.is | 20.05.13 | 10:44 Þjálfar hunda sem taka úr þvottavél
Meira
bb.is | 20.05.13 | 09:21Fjórir bátar Byggðasafnsins fá aðhlynningu í sumar
Meira
bb.is | 19.05.13 | 10:43Iðja fyrir fólk sem hefur lítið fyrir stafni
Meira
bb.is | 19.05.13 | 09:20Viðburðaríkt sumar að Hnjóti
Meira
bb.is | 18.05.13 | 10:43Kræklingarækt og fiskeldi fara vel saman
Meira
bb.is | 18.05.13 | 09:17Undirbúningurinn kominn á fullt
Meira
bb.is | 17.05.13 | 16:50Kaupir af Byggingarfélagi eldri borgara
Meira
bb.is | 17.05.13 | 14:48Ríkið tekur fjármuni frá sjávarbyggðunum
Meira
bb.is | 17.05.13 | 13:02Gjaldtaka styður uppbyggingu og öryggi
Meira
bb.is | 17.05.13 | 10:55Styttist í komu fyrstu skipanna
Meira