Frétt

Átta konur úr þrjátíu og sex kvenna hópi sem brautskráðist frá Húsmæðraskólanum á Ísafirði fyrir 60 árum komu saman á Ísafirði í dag.
Átta konur úr þrjátíu og sex kvenna hópi sem brautskráðist frá Húsmæðraskólanum á Ísafirði fyrir 60 árum komu saman á Ísafirði í dag.

bb.is | 26.07.2012 | 16:46Ef veggirnir gætu talað ...

Átta konur úr þrjátíu og sex kvenna hópi sem brautskráðist frá Húsmæðraskólanum á Ísafirði fyrir 60 árum komu saman á Ísafirði í dag, fóru á ýmsa staði og rifjuðu upp gamla og góða tíma. „Við erum að njóta minninganna og förum á alla helstu menningarstaði bæjarins,“ sagði ein í hópnum, Geirþrúður Charlesdóttir. Þá voru þær skólasysturnar staddar í Edinborgarhúsinu eftir að hafa hlýtt þar á Kaldalónslög í flutningi Guðrúnar Jónsdóttur óperusöngkonu (dóttur Geirþrúðar) og Margrétar Gunnarsdóttur píanóleikara.

„Auðvitað fórum við í skólann okkar gamla við Austurveg og skoðuðum hann allan og fannst það yndislegt. Núna er þar tónlistarskóli þannig að þar er ekki lengur neitt eldhús, en allt hitt gladdi okkur mjög og ekki síst vegna þess hvað húsið er ennþá fallegt. Svo vorum við í Tjöruhúsinu og fórum í kirkjuna og Safnahúsið og víðar,“ segir Geirþrúður. „Við erum afskaplega ánægðar að hittast svona aftur, allar orðnar pínufullorðnar!“

Af konunum átta sem núna komu saman eru þrjár búsettar vestra, þær Geirþrúður og Sigrún Stefánsdóttir á Ísafirði og Margrét Halldórsdóttir í Bolungarvík. Hinar fimm eiga heima í Reykjavík og á Akureyri.

Skólastýra fyrir sextíu árum var Þorbjörg Bjarnadóttir frá Vigur. „Þetta var ákaflega skemmtilegur tími og margt skemmtilegt sem gerðist í heimavistarskóla. Við þurftum reyndar helst að vera farnar að sofa klukkan tíu, orðnar tvítugar! Því hlýddu nú ekki alltaf allar,“ segir Geirþrúður ísmeygilega.

Þegar hún er spurð hvort ungir menn hafi ekki reynt að komast inn á lokaða heimavistina segir hún og hlær: „Jú, blessaður góði, það er nú líkast til! Ef veggirnir gætu talað, þá fengirðu margar sögur ...“

hlynur@bb.is

bb.is | 24.05.13 | 09:12 Algjörlega galið að stöðva rækjuveiðar

Mynd með frétt Úthafsrækjuveiðar verða stöðvaðar 1. júlí en til stendur að endurskoða skipulag rækjuveiða við landið sem hafa verið frjálsar undanfarin ár. Líklegt þykir að gefnar verði út aflaheimildir á skip en ekki eru allir sammála um útfærsluna. Fyrirkomulag undanfarinna ár hefur haft ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 07:40Samstarfssamningur undirritaður um sjávartengda nýsköpun

Mynd með fréttHáskólasetur Vestfjarða og Háskólinn á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um meistaranám í haf- og strandveiðastjórnun. Auk áframhaldandi samstarfs um meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun felur samningurinn einnig í sér samstarf stofnanna tveggja um nýtt meistaranám, sjávartengda nýsköpun. Sjávartengd nýsköpun er nýstárleg ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 16:49Milljarða framkvæmdir í Ísafjarðarbæ

Mynd með fréttÓvenju mikið er um stórar og umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í Ísafjarðarbæ á næstu misserum. Um er að ræða verkefni sem sum hver hlaupa á hundruðum milljóna króna. Landsnet og Orkubú Vestfjarða hyggjast reisa 320m² hús að Skeiði 7 sem á ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 14:47Kæruferli vegna útboðs?

Mynd með fréttSigurður G. Guðjónsson hæstaréttalögmaður kannar þessa dagana möguleika á kæru vegna útboðs á almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Eigandi fjögurra fyrirtækja, Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri, sem lagði inn fjögur tilboð í verkið, hefur leitað til Sigurðar vegna þessa. Öll tilboð fyrirtækja Friðfinns voru ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 13:01Aðalfundi Orkubús Vestfjarða frestað vegna nýrrar ríkisstjórnar

Mynd með frétt„Katrínu Júlíusdóttir þótti ekki við hæfi að skipa nýja stjórn Orkubúsins á síðustu starfsdögum sínum og því var ákveðið að fresta aðalfundinum,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem á sæti í stjórn fyrirtækisins, en aðalfundinn átti að halda í gær. Opinn ársfundur ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 10:58Mun aukin áhersla á verknám skila tilætluðum árangri?

Mynd með fréttNý ríkisstjórn leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi samkvæmt stefnuyfirlýsingu. Þar segir að áhersla verði lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu. ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 09:17Helstu áhrif framkvæmda við Dýrafjarðargöng sjónræns eðlis

Mynd með fréttSkipulagsstofnun telur að helstu neikvæðu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda við Dýrafjarðargöng verði sjónræns eðlis og áhrif á landslag. Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmdasvæðið er innan svæðis sem nýtur verndar vegna fjölbreytts og stórbrotins landslags og munu ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 07:45Ísafjörður árið 1893

Mynd með frétt„Við erum mjög heppin með bæinn okkar að hér sé kjarni bæjarins mjög heill og hápunktur Skúlamálanna hafi átt sér stað á þessum tíma. Þetta er mjög spennandi söguefni,“ segir Helga Hausner sem er einn þeirra Ísfirðinga sem taka á móti ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 16:50Sjófarendur án FM-sendinga

Mynd með fréttÍ kjölfar þess að mastur Ríkisútvarpsins á Þverfjalli, sem er í 750 metra hæð milli Skutulsfjarðar og Önundarfjarðar, lagðist á hliðina í fárviðri sem gekk yfir Vestfirði í lok janúar, var hafist handa við að tryggja FM-sendingar á þeim stöðum sem ...
Meira

bb.is | 22.05.13 | 14:48Fylgst með skriðuhættu

Mynd með fréttVegagerðin og verktakinn sem sá um vinnu við veginn um Kjálkafjörð, þegar stór skriða féll á veginn 23. apríl og lokaði honum, munu fylgjast með skriðuhættu á svæðinu og því getur komið til fyrirvararlítilla lokana ef minnsta hætta er á ferðum, ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi