 Galdrasafnið á Hólmavík. |
bb.is | 20.07.2012 | 07:49Mikill meirihluti gesta erlendir ferðamenn
„Jú, það er örugglega einhver gestafjölgun hjá okkur frá síðasta ári. Þetta byrjaði snemma í vor og það hefur verið mikið að gera hjá okkur,“ segir Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri Galdrasafnsins á Hólmavík. Sigurður segist ekki hafa haft tíma til þess ennþá að taka saman tölur um gestafjölda og þjóðerni á þessu sumri, en í fyrra voru um 70% gestanna erlendir ferðamenn. Hann kveðst ekki gera ráð fyrir að hlutföllin séu neitt mjög frábrugðin núna.
Galdrasýningin var sett á stofn árið 2000 og þetta er því þrettánda árið sem hún er opin.
hlynur@bb.is
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps opnar í haust svokallaða Iðju fyrir fólk sem hefur lítið fyrir stafni vegna atvinnuleysis, sjúkdóma eða fötlunar. „Fyrirmyndin er í raun Vesturafl á Ísafirði og Hver á Akranesi. Ég fór og kynnti mér starfsemi þessara staða og ...
Meira
„Það hefur gengið mjög vel að skipuleggja afmælisárið. Það er spenningur hér yfir dagskránni og því hvernig hún muni fara í gesti, jafnt heimafólk sem ferðamenn,“ segir Heiðrún Konráðsdóttir, forstöðukona Minjasafns Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn. Viðburðir sumarsins er settir ...
Meira
„Það er mjög margt sem mælir með því að fiskeldi og kræklingarækt fari vel saman, meðal annars vegna þess að umhverfisáhrif sjókvíaeldis geta hugsanlega minnkað ef kræklingarækt er byggð upp samhliða uppbyggingu á sjókvíaeldi,“ segir Shiran Þórisson hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Verkefni ...
Meira
„Undirbúningurinn er kominn á fullt. Það verður stærra mót í ár, fleiri vellir, fleiri lið, fleira fólk og meira gaman. Við erum að vinna í að bæta umgjörðina, fá betri aðstöðu fyrir gesti og keppendur,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur Evrópumeistaramótsins ...
Meira
Samningur um kaup Bolungarvíkurkaupstaðar á fyrstu hæð Aðalstrætis 20 ásamt hluta kjallara af Byggingarfélagi eldri borgara var undirritaður og handsalaður í gær. Hér er um að ræða stóran áfanga í nýja hjúkrunarheimilinu í Bolungarvík. Upphaflega var áformað að á fyrstu hæð ...
Meira
„Augljóslega er verið að taka mikla fjármuni úr sjávarbyggðunum með sérstakri skattlagningu á eina atvinnugrein, sjávarútveginn. Ekkert af sérstaka veiðigjaldinu rennur hins vegar til sveitarfélaganna,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík, aðspurður hvort sveitarfélög þar sem útgerð er stunduð njóti einhvers ...
Meira
„Ég er fylgjandi því að tekið verði einhvers konar gjald af ferðafólki sem heimsækir ferðamannastaði til að standa undir uppbyggingu þar. Hins vegar er ég enn hlynntari því að unnið verði miklu markvissara að því að dreifa ferðamönnum víðar um landið. ...
Meira
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Ísafjarðar 6. júní nk., og með því 3.300 farþegar. Að sögn Guðmundar M. Kristjánssonar, hafnarstjóra Ísafjarðarhafna, er um nokkra aukningu að ræða frá fyrra sumri. Ekki er gert ráð fyrir aukningu á skipakomum á næsta ári ...
Meira
Skoðanir varðandi hugsanlegt afnám hins sérstaka veiðigjalds eru mjög skiptar eins og m.a. hefur komið fram hér á vefnum, bæði hjá Óðni Gestssyni hjá Íslandssögu hf. á Suðureyri og Ólínu Þorvarðardóttur fráfarandi alþingismanni. Sigurður Viggósson framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði er ...
Meira
Samningur um nýja námsleið við Háskólasetur Vestfjarða verður undirritaður á aðalfundi Háskólasetursins sem fram fer á föstudag. Hin nýja námsleið nefnist „Sjávartengd nýsköpun“ og er samstarfsverkefni Háskólasetursins og Háskólans á Akureyri. Að sögn Peter Weiss, forstöðumanns Háskólasetursins, hefur lengi verið unnið ...
Meira