bb.is | 17.03.2010 | 16:55Ísfirðingar stóðu sig vel í Noregi
Unglingalið Skíðafélags Ísfirðinga í skíðagöngu fór fyrir stuttu til Noregs þar sem þau tóku m.a. þátt í HalvBirken í Lillehammer, en mótið er styttri útgáfa af hinni þekktu Birkebeinargöngu. Var þetta í fyrsta skipti sem gangan fer fram en hún er 28 km löng og þurftu keppendur að burðast með 3,5 kílóa bakpoka á leiðinni. Í flokki kvenna 16-39 ára komu Ísfirðingarnir Silja Rán Guðmundsdóttir og Rannveig Jónsdóttir í mark á sama tíma 1.49.04 og urðu í 7.-8. sæti. Sigurvegarinn í þessu flokki var Marte Engebrigtsen Nordli á tímanum 1.32.5. Þátttakendur í þessum flokki voru 106. Í flokki karla 16-39 ára varð Gunnar Birgisson Ulli í 17. sæti á tímanum 1.29.43, Sindri Freyr Kristinsson Skíðafélagi Akureyrar varð í 20. sæti á tímanum 1.32.34 og Arnór Freyr Fjölnisson Skíðafélagi Ísfirðinga í 27. sætu á tímanum 1.36.16. Sigurvegari varð Jonas Nielsen á tímanum 1.10.21. Þátttakendur voru 92 í þessum flokki.Frá þessu er greint á ski.is. Eins og fram hefur komið er helmingur unglingalandsliðsins í skíðagöngu Ísfirðingar, þau Arnór Freyr Fjölnisson, Rannveig Jónsdóttir og Silja Rán Guðmundsdóttir.
kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.