Frétt

Bolungarvíkurgöng.
Bolungarvíkurgöng.

bb.is | 17.03.2010 | 16:29Ekkert til fyrirstöðu að veita framkvæmdaleyfi

Umhverfismálaráð Bolungarvíkur sér því ekkert til fyrirstöðu að framkvæmdaleyfi verði gefið út fyrir lagningu 66 kV háspennustrengs í gegnum Bolungarvíkurgöng, þar sem framkvæmdin stangast ekki á við núgildandi aðalskipulag og lega strengsins kemur fram á drögum að endurskoðuðu aðalskipulagi fyrir Bolungarvíkurkaupstað 2008 til 2020. Landsnet hafði óskað eftir að fá upplýsingar frá sveitarfélaginu um hvort hægt yrði að fá framkvæmdaleyfi fyrir lagningu strengsins þó að nýtt aðalskipulag hafi ekki verið staðfest. Lega strengsins kemur fram á fyrirliggjandi drögum að endurskoðuðu aðalskipulagi.

Milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar liggur nú 66 kV háspennulína sem liggur fram Hnífsdalinn um Heiðarskarð yfir í Syðridal og þaðan að spennuvirki við Múrhúsaland í Bolungarvík. Línan þarfnast endurbóta en hún var upphaflega byggð sem 11kV og er með grennri leiðara en þær línur sem liggja frá Mjólká að Ísafirði. Línan hefur síðan verið spennuhækkuð með aukinni einangrun. Bolungarvíkurlína 2 er samkvæmt truflanaskráningum sl. 10 ára með mestu truflanatíðni allra lína á Vestfjörðum. Eftir að strengurinn hefur verið lagður og tekinn í notkun mun rekstri línunnar verða hætt og hún tekin niður.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli