bb.is | 17.03.2010 | 15:28850 þúsund til menningarmála
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt 850 þúsund króna fjárveitingu til menningarmála í sveitarfélaginu í ár. Sjö umsóknir hafa borist bæjaryfirvöldum um styrki og hafa sex umsóknir verið samþykktar. Leiklistarhátíðin Act Alone, sem haldin er í Ísafjarðarbæ í águst, fær 200 þúsund króna styrk, Litli leikklúbburinn fær einnig 200 þúsund til uppsetningar á leikverkinu „Vegir liggja til allra átta“ sem sýnt hefur verið á Ísafirði frá áramótum og kvikmyndin Vaxandi tungl fær 150 þúsund krónur en að framleiðslu myndarinnar stendur kvikmyndafélagið Í einni sæng ehf.,, Fiskvinnslan Íslandssaga ehf., á Suðureyri og Sigurður Ólafsson á Suðureyri.Þá fær alþjóðlega Swingdanshátíðin styrk upp á 100.000 krónur en sótt var um styrk vegna hátíðarinnar „Artic Lindy Exchange“ sem haldin verður bæði í Reykjavík og á Ísafirði í ágúst. Menningarmiðstöðin Edinborg fær 100.000 króna styrk og hjónin Guðlaug Jónsdóttir og Karl K. Ásgeirsson á Ísafirði fá 100 þúsund króna styrk til útgáfu matreiðslubókar, sem verður með skírskotun til svæðisins. Fyrirhugað er að hefja vinnu við bókina á árinu 2010 og er áætlað að vinnan standi í eitt og hálft til tvö ár.
Lífæðin FM Í Bolungarvík sótti einnig um styrk frá Ísafjarðarbæ vegna rekstrar á menningarútvarpi í Bolungarvík en útsendingar náðust í Bolungarvík, á Ísafirði, í Súðavík og á Suðureyri. Beðið var um styrk að fjárhæð 200.000 krónur en Ísafjarðarbær veitir Lífæðinni ekki styrk í þetta sinn.
kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.