Frétt

Krabbameinsfélagið Sigurvon.
Krabbameinsfélagið Sigurvon.

bb.is | 17.03.2010 | 14:59Safna fyrir hanskaskáp

Krabbameinsfélagið Sigurvon hefur óskað eftir styrkveitingu frá Ísafjarðarbæ til kaupa á svokölluðum hanskaskáp, til íblöndunar á krabbameinslyfjum. Forsaga málsins er sú að fyrir tveimur árum fékk Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 1.500.000 krónur að gjöf til kaupa á samskonar skáp. Strax var hafist handa við að finna skáp en vegna verðhækkana í kjölfar bankahrunsins varð ekkert úr þeim kaupum. Nýlega var farið aftur af stað að leita að tilboða og kom tilboð í skáp upp á 2.700.000 krónur. „Þar sem mjög mikilvægt er að einstaklingar sem greinast með krabbamein og þurfa lyfjameðferð geti fengið hana í heimabyggð, höfum við hjá Krabbameinsfélaginu Sigurvon ákveðið að standa fyrir söfnun á því sem upp á vantar til að af kaupunum geti orðið,“ segir í bréfi Sigurvonar er tekið var fyrir á bæjaráðsfundi á þriðjudag.

Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að ræða við forsvarsmann Sigurvonar um með hvaða hætti Ísafjarðarbær geti komið að málinu.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli