bb.is | 17.03.2010 | 14:28Samið við KNH um skeringar
Eins og greint hefur verið frá bauð KNH ehf.á Ísafirði lægst í svokallaðar skeringar í Eyrarhlíð. Bæjarráð hefur samþykkt tillögu bæjartæknifræðings um að samið verði við lægstbjóðanda. Alls bárust fjögur tilboð í verkið. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 18.135.000 krónur og og buðu KNH verktakar 15.172.500 kr eða 86,6% af kostnaðaráætlun. Aðrir sem buðu í verkið voru Þotan ehf. með 17.100.250 kr, sem er 94,3% af áætlun. Grafvélar ehf. voru með boð upp á 22.401.200 kr eða 123,5% af kostnaðaráætlun og þá voru Vinnuvélar Einars með tilboð sem hljóðaði upp á 26.798.000 kr eða sem nemur 148,8% af kostnaðaráætlun. Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. maí 2010.kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.