bb.is | 17.03.2010 | 13:56Geirnaglinn bauð lægst í þjónustuhús
Geirnaglinn ehf., á Ísafirði bauð lægst í byggingu þjónustuhúss á tjaldsvæðinu í Tungudal. Alls bárust sjö tilboð í verkið og bauð Geirnaglinn 15.984.948 krónur. Önnur tilboð bárust frá SÁ-verklausnum sem hljóðaði upp á 16.152.300 kr. Mót-X ehf., bauð 18.708.393 krónur. Spýtan ehf., bauð 19.270.150 krónur. Ráðþing ehf., bauð 19.748.314. krónur. Vestfirskir verktakar buðu 20.545.400 krónur og GÓK húsasmíði bauð 23.468.043 krónur. Í fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2010 var gert ráð fyrir að í verkið færu 15.000.000 króna í heild. Bæjartæknifræðingur hefur óskað eftir heimild til að að ganga við samning við lægstbjóðanda og minnka umfang verksins svo það falli að fjárhagsáætlun. Bæjarráð samþykkir tillögu bæjartæknifræðings um að samið verði við lægst bjóðanda.kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.