Frétt

Slysavarnardeild kvenna á Ísafirði færði fæðingardeild FSÍ vatnsheldan doppler-mæli auk þess sem nýbakaðir foreldrar fengu öryggisvörur að gjöf.
Slysavarnardeild kvenna á Ísafirði færði fæðingardeild FSÍ vatnsheldan doppler-mæli auk þess sem nýbakaðir foreldrar fengu öryggisvörur að gjöf.

bb.is | 17.03.2010 | 13:29Færðu fæðingadeild FSÍ doppler-mæli

Slysavarnardeild kvenna á Ísafirði kom færandi hendi til fæðingardeildar Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði á dögunum. Á fæðingastofu FSÍ er vegleg baðlaug, sem notuð er í þeim tilgangi að lina hríðarverki og aðra vanlíðan í fæðingu. Hefur það háð konunum, að ekki hefur verið hægt að hlusta eftir hjartslætti fóstursins ofan í laugarvatninu. Slysavarnardeildin bjargaði því vandamáli og færði fæðingadeildinni að gjöf vatnsheldan doppler-mæli af Huntleigh gerð, en hann fylgist með hjartslætti fósturs í gegnum kviðvegg móðurinnar, án þess að hún þurfi að standa upp úr lauginni í hvert skipti og þess er þörf.

Við sama tækifæri færði slysavarnadeildin nýbökuðum foreldrum á fæðingadeildinni öryggisvörur fyrir heimili þeirra, sem ætlaðar eru til að koma í veg fyrir óhöpp hjá barni þeirra í framtíðinni. Ætlar Slysavarnadeild kvenna á Ísafirði að halda áfram að færa nýjum foreldrum slíka gjafapakka.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli