Frétt

Veiðihjól Fossadals ehf. hafa vakið mikla athygli. Mynd: www.einarsson.com.
Veiðihjól Fossadals ehf. hafa vakið mikla athygli. Mynd: www.einarsson.com.

bb.is | 17.03.2010 | 14:56Markaðssetning í fullum gangi

Nýsköpunarfyrirtækið Fossadalur ehf., á Ísafirði markaðssetur fluguveiðihjól á alþjóðlegum markaði undir vörumerkinu Einarsson Fly Fishing og er markaðssetning í fullum gangi. Nýverið var tekin ákvörðun um að fjölga starfsfólki í framleiðslu og nú er verið að auglýsa eftir starfsmanni í framtíðarstarf. Fossadalur ehf. er í hátækniúrvinnslu á áli, ryðfríu stáli, títan og koltrefjum. Fyrsta fullbúna vara fyrirtækisins er fyrsta og eina fluguveiðihjólið sem er þróað og framleitt á Íslandi. Fyrirtækið hóf rekstur árið 2007 og hefur mikið starf verið unnið við þróun þess síðan þá. Nú er svo komið að Fossadalur hefur vakið athygli á erlendum mörkuðum og eftirspurn eftir hjólunum hefur aukist umtalsvert.

Metnaður eigenda fyrirtækisins liggur í að hanna og framleiða búnað til nota í fluguveiði, samkvæmt alþjóðlegum umhverfisgildum sem sífellt hafa meira hlutverki að gegna við hönnun og framleiðslu á vörum fyrir alþjóðlegan markað. Það er markmið Fossadals og framtíðarsýn að framleiða umhverfisvænar vörur og uppfylla skilyrði til að teljast „grænt fyrirtæki“.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli