Frétt

Síðasti dagur Sveins skotta fjallar um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Reiðskörðum á Barðaströnd árið 1648.
Síðasti dagur Sveins skotta fjallar um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Reiðskörðum á Barðaströnd árið 1648.

bb.is | 17.03.2010 | 13:03Kolsvört kómedía frumsýnd

Kómedíuleikhúsið og Lýðveldisleikhúsið frumsýna nýtt íslenskt leikverk í Edinborgarhúsinu á Ísafirði annað kvöld. Verkið nefnist Síðasti dagur Sveins skotta og er eftir Benóný Ægisson og leikhóp verksins. Hér er á ferðinni kolsvört kómedía um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd árið 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín. Verkið er blanda af leiklist, tónlist og dansi. Helstu höfundar og flytjendur verksins eru Benóný Ægisson höfundur handrits og tónlistar, Elfar Logi Hannesson leikari, Halldóra Malín Pétursdóttir leik- og söngkona, Henna Riikka Nurmi höfundur sviðshreyfinga, leikari og dansari, Steingrímur Guðmundsson höfundur tónlistar og hljóðfæraleikari og Ársæll Níelsson leikari. Þorsteinn J. Tómasson hannar lýsingu og Marsibil G. Kristjánsdóttir sér um leikmynd og búninga.

Aðeins eru áætlaðar tvær sýningar á Ísafirði en þær fara báðar fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Auk frumsýningingarinnar verður önnur sýning á laugardag og hefjast þær báðr kl. 20. Miðasala er hefin í síma 450 5565.

Uppsetning verksins er styrkt af menningarráði Vestfjarða og fyrirtækjum á Ísafirði sem eru vinveitt listum og menningu. Eftir að verkið hefur verið sýnt á Ísafirði verður það sýnt í Reykjavík og víðar um landið.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli