bb.is | 17.03.2010 | 11:29Veiddi fimm metra hákarl
Jón Eiríksson Snorra ST frá Árneshreppi fékk stóran hákarl á hákarlalóðir í gærmorgun. Jón lagði lóðirnar fyrir nokkru og er þetta fyrsti hákarlinn sem hann hefur fengið. Frá þessu er greint á litlihjalli.it.is. Samkvæmt upplýsingum þaðan er hákarlinn 5 metrar að lengd og 900 kg að þyngd. Honum var landað á Gjögurbryggju. Jón hefur verið með nokkur rauðmaganet í sjó en fer að byrja á grásleppuveiðum en hann mun leggja upp á Norðurfirði og verða hrognin verkuð þar. Meðfylgjandi mynd tók Jón G. Guðjónsson í Árneshreppi.kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.