Frétt

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum er til húsa í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum er til húsa í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

bb.is | 17.03.2010 | 11:48Skynsamlegt að sveitarfélög yfirtaki þjónustu við fatlaða

Þroskahjálp hefur samþykkt stefnu varðandi tilflutning félagsþjónustu við fatlaða til sveitarfélaga. Stefnan var samþykkt á stjórnarfundi samtakanna á laugardag og var síðan borin undir formenn aðildarfélaga samtakanna á sameiginlegum fundi þeirra og stjórnar samtakanna. Í stefnunni kemur m.a. fram að ávinningur af tilflutningi sértækrar félagsþjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga sé að, einn ábyrgðaraðili sjái um framkvæmd þjónustunnar, þjónustan sé nærþjónusta eins og almennt gerist í félagsþjónustu, framkvæmd þjónustu og eftirlit sé aðskilið og að tilflutningurinn stuðli að samskipan þar sem fatlað fólk fær félagsþjónustu frá sömu aðilum og aðrið íbúar.

Að mati Landssamtaka Þroskahjálpar er skynsamlegt að sveitarfélögin yfirtaki þjónustuna nú um áramótin. Samtökin leggja einnig til að ríki, sveitarfélög og hagsmunaaðilar geri með sér samkomulag um að halda viðræðum um þróun félagsþjónustu við fatlaða áfram. Stefnt verði að samkomulagi um framtíðarfyrirkomulag og eftirlit með þessari þjónustu fyrir 1. janúar 2012 og jafnframt þeirri vinnu færi fram mat á kostnaði við þjónustuna. Með slíku vinnulagi yrði endurskoðun samnings ríkis og sveitarfélaga árið 2014 ekki síður faglegt úttekt en fjárhagsleg.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (1 Komment )

  1. Komment skrifaði reynirr þann 17.03.10 | 12:20

    Það liggur beinast við að þetta komi til Bolungavíkur,vegna þess að bolungarvíkurkaupstaður á akkurat rétta húsið.Það væri hækt að taka við þessu fljótlega.

Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli