Frétt

Frá Skólahreysti á Ísafirði 2008.
Frá Skólahreysti á Ísafirði 2008.

bb.is | 17.03.2010 | 07:21Vestfirðingar takast á í Skólahreysti

Vestfirðingar keppa í Skólahreysti á morgun en þá fer fram síðasti riðillinn í hreystikeppninni sívinsælu. Í riðlinum taka einnig þátt fulltrúar frá skólum á Vesturlandi en keppni hefst kl. 13 íþróttahúsi Breiðabliks í Kópavogi. Fyrir hönd Grunnskólans á Ísafirði keppa þau Anna María Stefánsdóttir, Birkir Örn Stefánsson, Patrekur Þór Agnarsson og Rannveig Hjaltadóttir. Til vara verða þau Thelma Rut Jóhannsdóttir og Stefán Friðbjarnarson. Sex keppa fyrir hönd Grunnskóla Bolungarvíkur, þau Birgir Loftur Bjarnason, Hlynur Freyr Sigurgeirsson, Karl Svanhólm Þórisson, Anna Þuríður Sigurðardóttir, Ebba Kristín Guðmundsdóttir og Þórunn Emma Sigurðardóttir.

Þeir sem taka þátt fyrir hönd Grunnskólans á Þingeyri eru Þórður S. Ragnarsson, Maciej Sierzputowsky, Blómey Ósk Karlsdóttir, Sigríður Hlín Jónsdóttir, Davíð Sighvatsson og Sigríður Halla Halldórsdóttir. Engir nemendur fara fyrir hönd grunnskólanna á Suðureyri, Flateyri og Súðavík. Þátttakendur Reykhólaskóla eru Margrét Björnsdóttir, Dagný Bjarkadóttir, Ottó Hlíðar Gunnarson og Róbert Ingvarsson. Um metfjölda þátttökuliða er að ræða í ár en 120 skólar hafa skráð sig til leiks. Tilgangur Skólahreysti er að fá krakkana til að hreyfa sig og gera gömlu góðu leikfimisæfingarnar eftirsóknarverðar og skemmtilegar á ný í nýjum og uppfærðum búningi.

Skólahreysti er nú haldin í fimmta sinn, en fyrsta keppnin var haldin árið 2005. Krakkar, íþróttakennarar og skólastjórnendur voru strax mjög jákvæðir í garð keppninnar sem haldin hefur verið á landsvísu frá 2007. Alls fara tíu forkeppnir fram á nokkrum stöðum á landinu, áður en þau 12 lið sem unnið hafa sér rétt til þátttöku í úrslitunum keppa í Laugardalshöllinni þann 29. apríl.

Stigahæsti skólinn kemst áfram úr hverjum riðli. Stigahæsta liðið úr riðli frá Vesturlandi og Vestfjörðum kemst áfram í úrslit og því eru tvö lið að komast áfram úr þeim riðli. Tvö stigahæstu liðin sem ekki komust áfram verða tekin inn í úrslit.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli