bb.is | 17.03.2010 | 10:31Patreksdagur í dag
Patreksdagur er í dag en þá heiðra Patreksfirðingar minningu heilags Patreks, verndardýrlings Íra. Vegleg fimm daga hátíðahöld hafa staðið yfir í Vesturbyggð vegna Patreksdagsins í ár en hún nær hámarki í dag. Til að mynda er grænn dagur á leikskólanum Arakletti og starfsmenn í Sparisjóðnum í Keflavík á Patreksfirði verða grænlitaðir. Þá er frítt í sund í Sundlauginni Bröttuhlíð í boði Vesturbyggðar og söluturninn Albína býður íbúum frían barnaís með dýfu. Fjölval býður snúða með grænum glassúr á 99 krónur stykkið og eina fría kókómjólk með.Kl. 18 hefst skemmtun í Félagsheimili Patreksfjarðar. Kynnir er Sr. Leifur R. Jónsson og Anna Jensdóttir flytur erindi um Patreksdaginn. Tónlistarskólinn skemmtir og Halldóra Björnsdóttir leikkona les söguna Gluggavofuna eftir Rögnu Eyjólfsdóttur. Þá kemur Karlakórinn Vestri og Kvennakórinn Bjarkirnar fram og fluttur verður ljóðalestur. Hátíðinni lýkur svo með Patreksdagsbrennu á oddanum í kvöld.
Heilagur Patrekur fæddist í Wales í kringum árið 385. Hann var heiðingi fram að 16 ára aldri þegar hann var hnepptur í þrælahald og snerist í framhaldi af því til kristinnar trúar. Hann varð annar biskup yfir Írlandi og vann við að kristna Íra í 30 ár, oft var hann handtekinn en tókst ætíð að sleppa. Þjóðsagan segir að hann hafi m.a. reist upp fólk frá dauða og útrýmt öllum snákum á Írlandi í messu. Hann dó 17. mars árið 461 og hefur sá dagur alla tíð síðan verið haldinn hátíðlegur á Írlandi sem dagur heilags Patreks.
Dagskrána má nálgast í heild á vef Vesturbyggðar.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.