Frétt

Sýnishorn af safni Helga. Mynd: melrakki.is.
Sýnishorn af safni Helga. Mynd: melrakki.is.

bb.is | 17.03.2010 | 10:03Frímerkjasýning í Melrakkasetri Íslands

Sýning á frímerkjum, póstkortum og myndum af melrökkum frá ýmsum heimshornum er meðal þess sem verður í boði þegar Melrakkasetur Íslands opnar 12. júní. Það er Helgi Gunnarsson frá Hafnarfirði sem á safnið en myndirnar og frímerkin tengjast allir melrakkanum á einhvern hátt. Sýning fer fram á Rebbakaffi sem verður lítið kaffihús sem opnar samhliða Melrakkasetrinu en gert er ráð fyrir því að þar verði hægt að njóta veitinga innandyra sem utandyra og njóta útsýnis Álftafjarðar. „Það er fengur fyrir okkur að fá að sýna þetta merka safn sem Helgi hefur sett saman á skemmtilegan hátt í máli og myndum,“ segir á vef Melrakkaseturs Íslands.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli