Frétt

Núpur BA frá Patreksfirði.
Núpur BA frá Patreksfirði.

bb.is | 17.03.2010 | 09:31Núpur BA aflahæstur

Línubáturinn Núpur BA frá Patreksfirði er aflahæsti línubátur það sem af er mánuðinum samkvæmt tölum Aflafrétta. Núpur er með tæp 160 tonn í þremur róðrum. Mest kom hann með 66,8 tonn í einum róðri. Hafa ber í huga að Núpur er með styttri línu og fer að jafnaði styttri ferðir en þeir bátar sem næst koma í aflamagni. Þá er Kópur BA frá Tálknafirði í níunda sæti listans með 92 tonn í þrem róðrum en mest 54,4 tonn í einum róðri. Frá þessu er greint á aflafrettir.com.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli