Frétt

Menntaskólinn á Ísafirði.
Menntaskólinn á Ísafirði.

bb.is | 17.03.2010 | 08:52Martha með fyrirlestur í MÍ

Martha Ernstsdóttir, sjúkraþjálfari og afreksíþróttakona átti að halda fyrirlestur í Menntaskólanum á Ísafirði á morgun en honum hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Martha ætlar að fjalla um feril sinn á hlaupabrautinni, undirbúning fyrir þátttöku í alþjóðlegum mótum ásamt því að fjalla um flesta þá áhrifaþætti sem afreksíþróttamenn þurfa að taka tillit til í sínu daglega lífi. „Fyrirlesturinn er fyrir nemendur á afreksíþróttabraut Menntaskólans en er opinn öllu áhugafólki um þessi mál meðan húsrúm leyfir,“ segir í tilkynningu frá sviðstjóra íþrótta við Menntaskólann á Ísafirði.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli