Frétt

Starfsnám stuðningsfulltrúa hófst í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á mánudag.
Starfsnám stuðningsfulltrúa hófst í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á mánudag.

bb.is | 17.03.2010 | 08:31Starfsnám stuðningsfulltrúa hafið á Ísafirði

Starfsnám stuðningsfulltrúa hófst í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á mánudag. Námið er frá Fræðslusetrinu Starfsmennt og er kennt frá Reykjavík í gegnum fjarkennslu. Námið er 106 kennslustundir en næsta haust verður 80 kennslustunda framhald. Starfsnám fyrir stuðningsfulltrúa er ætlað starfsmönnum í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Námið er einnig opið þeim sem hyggja á störf á þessum vettvangi. „Markmiðið er að auka færni og þekkingu starfsfólks á aðstæðum og þörfum fatlaðra til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Námið snertir fjölbreytta fleti sálar-, félags- og uppeldisfræði og er grunn- og framhaldsnámið metið til eininga í félagsliða,“ segir á vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli