bb.is | 17.03.2010 | 08:09Tóku þátt í bikarmóti í Oddskarði
Ungir ísfirskir skíðakappar tóku þátt í bikarmóti í alpagreinum sem haldið var í Oddskarði um síðustu helgi. Ásgeir Hinrik Gíslason hafnaði í 6. sæti í flokki 15-16 ára pilta í stórsvigi og Gauti Geirsson hafnaði í því sjöunda. Ebba Kristín Guðmundsdóttir varð í 10. sæti í flokki 15-16 ára stúlkna en Elín Jónsdóttir lauk ekki keppni. Á sunnudag var keppt í stórsvigi 15 ára og eldri og þar lenti Gauti Geirsson í 7. sæti en aðrir Ísfirðingar luku ekki keppni. Frá þessu er greint á vef skíðafélags Ísfirðinga, snjor.is.kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.