Frétt

Mælingin fer fram í samvinnu við afreksíþróttabraut MÍ.
Mælingin fer fram í samvinnu við afreksíþróttabraut MÍ.

bb.is | 17.03.2010 | 07:41Ísfirskir afreksíþróttamenn mældir

Sænski þrekþjálfarinn Jimmy Ekstedt stjórnar mælingum á afkastagetu keppnisíþróttamanna í tengslum við afreksíþróttabraut Menntaskólans á Ísafirði. Mælingin fer fram í dag kl 16 og meðal þeirra sem fá tækifæri til að spreyta sig á prófinu eru íþróttamenn úr BÍ/Bolungarvík og KFÍ en mælingarnar eru samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Um 600 íslenskir afreksíþróttamenn hafa verið prófaðir og er niðurstaðan sett í íslenskan gagnagrunn til samanburðar. Einnig verður hægt að bera tölurnar saman við alþjóðlegan gagnagrunn. Prófið mælir bæði styrk, snerpu og samhæfingu hreyfinga ásamt þoli hvað varðar súrefnisupptöku og mjólkursýrumyndum.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli