Frétt

visir.is | 09.02.2010 | 11:00Norskur stjörnulögfræðingur í mál við Ísland

Norski lögfræðingurinn Morten Furuholmen hefur í nógu að snúast. Hann er nú á Íslandi til að undirbúa málshöfðun gegn íslenskum stjórnvöldum fyrir að neita norskum Vítisenglum um landgöngu. Furuholmen kom til Íslands í gær ásamt leiðtoga norsku Vítisenglanna Leif Ivar Kristiansen. Leif Ivar var handtekinn við komuna og sendur úr landi í morgun.

Furuholmen sagði í samtali við fréttastofu að sér væri brugðið við handtökuna enda væri hún tilefnislaus, Leif Ivar hafi aldrei brotið lög á Íslandi þótt hann sé á sakaskrá í Noregi.

En Furuholmen þarf að berjast á fleiri vígstöðvum. Í gær gerði norska lögreglan húsleit á þrem stöðum hjá Vítisenglunum og voru fjórir handteknir.

Norska blaðið Aftenposten segir frá því að lögmaðurinn sé á Íslandi en hann hafi sent SMS skilaboð til blaðsins þar sem hann segði að handtökurnar væru tilefnislausar.

Furuholmen er einnig lögmaður tveggja norskra málaliða sem hafa verið dæmdir til dauða fyrir morð í Afríkuríkinu Kongó.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli