Frétt

mbl.is | 09.02.2010 | 08:20Fjöldagröf finnst í Albaníu

Á annan tug mannslíka hafa fundist í Albaníu, en þau eru talin vera af pólitískum föngum sem teknir voru af lífi í tíð kommúnista. Líkin fundust þar sem áður var herstöð, nærri höfuðborginni Tírana. „Allt þetta fólk sem fannst var tekið af lífi með einni byssukúlu í höfuðið," hefur AFP eftir forsætisráðherra Albaníu, Sali Berisha. Til stendur að gera DNA rannsóknir til að bera kennsl á líkin.

AFP hefur eftir Albananum Jovan Plaku að hann hafi leitað í herstöðinni fyrrverandi mánuðum saman til að vinna jarðneskar leifar föður síns, sem var pólitískur fangi og tekinn af lífi af kommúnistastjórninni árið 1976 fyrir föðurlandssvik. Lík föður hans virðist hinsvegar ekki vera meðal þeirra sem fundust á staðnum.

Albanía var einangruð frá umheiminum í rúma fjóra áratugi undir stjórn einræðisherrans Enver Hoxha, sem stjórnaði landinu frá lokum seinni heimsstyrjaldar til dauða hans árið 1985. Kommúnistar voru við stjórn til ársins 1990. Talið er að um 5.577 karlar og 450 konur hafi verið tekin af líki undir kommúnistastjórninni. Yfir 26.000 manns voru hneppt í fangelsi og 32.000 flutt í fangabúðir á afskekktum svæðum.

Allt síðan kommúnisminn féll hefur fjöldi fjölskyldna leitað að vísbendingum um afdrif ættingja sinna en engar skrásettar heimildir eru til um það hvað leynilögreglan gerði við „óvini ríkisins" eftir aftökur.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli