mbl.is | 09.02.2010 | 08:14Íbúarnir sviptir öryggi sínu
„Ég veit að fólk flutti út á Álftanes – sérstaklega fjölskyldufólk – vegna þess að það vissi af mjög góðum skóla og leikskólum og að þar væri öryggi að finna. En það sama fólk hefur verið svipt því öryggi,“ segir Hans Guðberg Alfreðsson, prestur í Bessastaðasókn. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ákvað í gær að fara að tillögu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og skipa þriggja manna fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála Álftaness.Þar sem sveitarfélagið er komið í greiðsluþrot og nú svipt fjárráðum hefur óvissa aukist mikið á Álftanesi, s.s. hvað verði um sveitarfélagið, hvort eignir þess verði seldar og það jafnvel sameinað öðru.
Hans Guðberg segir Garðbæinga finna fyrir kreppunni eftir hrunið en á Álftanesi komi kreppa ofan í kreppu og áhrifin séu því þeim mun meiri. „Óvissuástandið er svo erfitt ástand. Að vita ekki hvernig málum verður háttað hjá sveitarfélaginu.“
Sjá nánar um erfiðleikana á Álftanesi í Morgunblaðinu í dag.
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.