bb.is | 09.02.2010 | 10:36Fjölmennt á sólarkaffi á Bíldudal
Fjölmennt var á sólarkaffi Kvenfélagsins Framsóknar sem haldið var í félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal um helgina. Börnin skipa alltaf sinn sess á sólarkaffinu og stigu leikskólabörnin á stokk og sungu fyrir gesti. Eldri börn frá Félagsmiðstöðinni Dymon fluttu einnig brandara og var vel hlegið að þeim að því er fram kemur á bildudalur.is. Síðan var spilað bingó og skemmtu menn sér vel.thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.