Frétt

Patrekshöfn.
Patrekshöfn.

bb.is | 09.02.2010 | 10:05Hafa áhyggjur af drætti

Hafnarstjórn Vesturbyggðar hefur lýst yfir verulegum áhyggjum yfir hugsanlegum drætti á steypu hafnarþekju eftir framkvæmdir vegna endurnýjunar rúmlega hálfrar aldar gömlu stálþili stálþils í Patrekshöfn. Á dögunum var haldinn kynningarfundur um framkvæmdirnar við endurnýjun stálþilsins. Fulltrúar fyrirtækja, hafnarstjórnar, verktaka og siglingastofnunar sátu fundinn þar sem gert var grein fyrir framkvæmdaferlinu. Þar sem fram kom að ekki er ljóst með tímasetningu á steypu hafnarþekju eftir framkvæmdir.

Þilið er um 308 m að lengd og á 5-6 m dýpi. Verkið mun stórbæta löndunaraðstöðu og viðlegu fiskiskipa á staðnum. Lægstbjóðandi var Geirnaglinn ehf. á Ísafirði og hófust framkvæmdir á síðasta ári.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli