Frétt

Frá fyrri árshátíð MÍ.
Frá fyrri árshátíð MÍ.

bb.is | 09.02.2010 | 08:34Árshátíðarvika í MÍ

Árshátíð Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði verður haldin á föstudag og af því tilefni verður nemendum MÍ boðið uppá skemmtilega viðburði út vikuna. Vikan endar svo með glæsilegum árshátíðarmat þar sem boðið verður upp á tælenska rétti og frábær skemmtiatriði. Eftir borðhald gefst nemendum síðan kostur á að skella sér á dansleik með hljómsveitinni XXX Rotweilerhundum. Í Árshátíðarvikunni fá nemendur sem skráðir eru í nemendafélagið afslátt af hjá hárgreiðslustofunni Ametyst, afslátt af meðferðum á Snyrtistofu Sóleyjar sem og að brúnkuþyrstir menntskælingar geta sótt ljósatíma í Studio Dan á ríflegum afslætti svo eitthvað sé nefnt.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli