Kristín Hálfdánsdóttir | 03.02.2010 | 14:32Við getum gert betur
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér á lista sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ í prófkjöri sem haldið verður 13. febrúar vegna sveitarstjórnarkosninganna að vori. Í því tilefni vil ég tiltaka helstu áherslur mínar varðandi stjórnun Ísafjarðarbæjar.Það eru tvo málefni sem ég hef sett framar öðrum sem er betri og skilvirkari stjórnsýsla og umhverfismál. Ég er menntaður rekstrarfræðingur með mikla reynslu í rekstri og er viss um að það mun nýtast mér vel við það fyrrnefnda, að sjálfsögðu eru það fleiri málaflokkar sem höfða til mín enda hef ég tekið þátt í jafn ólíkum málaflokkum eins og fræðslu og íþróttamálum ásamt félagsmálum.Ég þykist fullviss um að taka má til í stjórnsýslu Ísafjarðarbæjar með það að markmiði að halda uppi öflugri þjónustu fyrir minna fé. Ég tel að betur megi fara með skatttekjur bæjarbúa með skilvirkari stjórnun mannauðs og vandaðri fjármálastjórn. Í litlu samfélagi eins og Ísafjarðarbæ þarf að sníða sér stakk eftir vexti og notfæra sér kosti smæðarinnar með stuttum boðleiðum og einfaldri stjórnsýslu. Það er mikilvægt að starfsmenn geri sér grein fyrir því að störf þeirra snúast um þjónustu við íbúa og þeir leggi sig alla fram um að veita hana með hagsmuni þeirra í huga.
Það eru erfiðir tímar núna og búast má við að enn um sinn muni heldur þrengja að. Á slíkum tímum þarf að velta við öllum steinum og skoða alla möguleika til að nýta skatttekjur bæjarbúa á sem hagkvæmastan hátt. Það er ekkert sjálfgefið að Ísafjarðarbær geti á næstu misserum haldið uppi því þjónustustigi sem við búum við í dag og því verðum við að gæta þess að fara vel með þá peninga sem við höfum til ráðstöfunar.
Umhverfismálin eru mér hugleikin og ég er sannfærð um að sá málaflokkur muni skipta okkur meira máli í náinni framtíð og að þar séu miklir hagsmunir bæjarbúa. Í umhverfismálum liggja bæði möguleikar og skyldur hvað varðar ráðstöfun fjármuna og ekki síður að haga umgengni okkar þannig að við getum skilað nærumhverfi okkar með góðri samvisku til komandi kynslóða. Sorpmál okkar ísfirðinga eru gott dæmi um slík mál þar sem togast er um skynsamlega ráðstöfun fjármuna og umhverfismál. Best er þegar slíkt getur farið saman en lokalausnin getur einmitt legið hjá hinum almenna íbúa bæjarins þar sem bætt skipulag dregur úr kostnaði.
Ég hlakka til að takast á við mikil og krefjandi verkefni ef þú, ágæti kjósandi, veitir mér stuðning í 3-4 sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 13.febrúar n.k.
Ísafirði 2. febrúar 2010,
Kristín Hálfdánsdóttir.
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.