bb.is | 02.02.2010 | 13:01Allur ísfirskur strandveiðiafli seldur til aðila utan löndunarhafnar
Aflinn sem strandveiðibátarnir veiddu síðastliðið sumar og var landað á Ísafirði, var allur seldur beint til aðila utan löndunarhafnar. Sömu sögu má segja um Bíldudal, Þingeyri, Norðurfjörð, Hólmavík og Patreksfjörð. 91,7 tonnum af strandveiðiafla var landað á Ísafirði, þar af voru 14 tonn seld til vinnslu beint af skipi, rúm 76 tonn voru seld á fiskmarkaði til vinnslu og rúmt 1,5 tonn af aflanum var keyptur af markaði og fluttur út. Strandveiðibátarnir frá Bolungarvík lönduðu samtals 220 tonnum í Bolungarvík. 40% af þeim afla var seldur á markaði eða til vinnslu í sama bæjarfélagi eða um 89 tonn. Rúm 130 tonn voru seld til aðila utan löndunarhafnar og var mest selt á markaði til vinnslu utan Bolungarvíkur eða um 120 tonn. 6,2 tonn voru seld beint af skipi, 3,6 tonn voru seld á markaði og flutt út. Á Flateyri var 99,8 % af aflanum keyptur af aðila í löndunarhöfn, aðeins 182 kg voru seld aðila utan löndunarhafnar. Alls var landað 79,5 tonnum á Flateyri og voru þau öll seld til vinnslu beint af skipi. Á Suðureyri var 90,6% af aflanum seldur aðila í heimahöfn. Á Vestfjörðum fór 29% aflans til vinnslu í heimahöfn bátanna.Af þeim 4.100 tonnum sem strandveiðibátarnir á Íslandi veiddu við Íslandsstrendur síðastliðið sumar fór aðeins 17% til vinnslu í heimhöfn bátanna. Afli af strandveiðibátum var landað í 53 höfnum á landinu og í helmingi þeirra eða 26 höfnum fór ekkert af aflanum til vinnslu þar á staðnum. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar á Alþingi. Töluleg gögn eru unnin af Fiskistofu og stuðst er við upplýsingar úr vigtar- og ráðstöfunarskýrslum. Þar sem Fiskistofa fylgir ekki aflanum lengur eftir en að fyrsta kaupanda er ekki hægt að fullyrða að fiskvinnsla, sem kaupir afla og er staðsett í sömu höfn og löndun strandveiðibáts á sér stað, hafi sannanlega unnið hann eða ekki.
kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.