bb.is | 10.11.2009 | 08:05Gistinóttum fjölgar mikið á Vestfjörðum
Gistinóttum fjölgaði mikið milli ára á Vestfjörðum en á síðasta ári voru þær 91.809 talsins eða tæplega 13 þúsund fleiri en árið þar á undan. Undanfarin þrjú ár hafa Íslendingar verið í meirihluta þeirra sem nýttu sér gistingu í fjórðungnum en útlendingum fjölgaði mikið á síðasta ári. Voru Íslendingar 49.141 en útlendingar 42.668. Meirihluti gisti á hóteli eða gistiheimili, eða 50.542 talsins, en 41.267 nýtti sér annars konar gististaði svo sem orlofshúsabyggðir, farfuglaheimili, svefnpokagististaðir, tjaldsvæði, skálar í óbyggðum og heimagististaðir. Þetta kemur fram í Landshögum 2009, hagtöluárbók Hagstofunnar. Þar kemur einnig fram að á tímabilinu janúar til apríl voru 16 gististaðir í boði á Vestfjörðum en þeim fjölgaði í 27 á tímabilinu maí til ágúst. Þeim fækkaði svo aftur niður í 21 frá september til desember.Gistinóttum hefur fjölgað hratt undanfarin þrjú ár eftir því sem fram kemur í Landshögum. Árið 2006 voru gistinætur á Vestfjörðum 69.364 talsins og þar af voru 43.650 Íslendingar og 25.714 útlendingar. Árið 2007 voru gistinæturnar 78.868 og þar af voru 45.778 Íslendingar og 33.090 útlendingar. Gera má ráð fyrir að enn meiri aukning verði í ár en samkvæmt könnun meðal ferðaþjónustuaðila í haust kom fram að tekjuaukning í ferðaþjónustu á Vestfjörðum hafi verið um þrjátíu prósent það sem af er ári
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.