Frétt

Ísafjörður.
Ísafjörður.

bb.is | 27.07.2009 | 10:28Ísfirðingar ekki tilraunagjarnir

Ræktun í matjurtargörðum í Ísafjarðarbæ hefur gengið mjög vel það sem af er sumri. Ralf Trylla, umhverfisfulltrúi Ísafjarðarbæjar, stendur fyrir matjurtargörðunum og segir hann ásókn í þá hafa verið mjög mikla og eru um þrjátíu slíkir í notkun af íbúum sveitarfélagsins. Hann segir matjurtarræktendurnar ekki tilraunagjarna því lang flestir hafi látið sér nægja að setja niður kartöflur en nokkrir hafa prófað að setja niður gulrætur og lauka. Fyrir næsta sumar ætlar Ralf að bæta aðstöðuna við garðana og auðvelda aðgengi að vatni og plægja upp stærra svæði svo fleiri geti sett niður framandi grænmeti eða kartöflur.

birgir@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli