Frétt

Mjóafjarðarbrúin. Ljósm: Eyjólfur Ari Bjarnason.
Mjóafjarðarbrúin. Ljósm: Eyjólfur Ari Bjarnason.

bb.is | 03.07.2009 | 16:48Ísland er algjört núll úti í heimi!

Ísfirska verktakafyrirtækið KNH ehf., sem sér um smíði brúarinnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi, þarf að fá sérfræðing frá Bretlandi ásamt tækjabúnaði til að spenna brúna áður en hún verður steypt. Breska fyrirtækið neitar að stunda viðskipti við Íslendinga nema gegn staðgreiðslu og til þessa hafa þeir ekki tekið gilda kvittun fyrir fyrirframgreiðslunni frá íslenskum banka. Því er alls óvíst að brúin verði opnuð fyrir umferð um verslunarmannahelgina eins og áætlanir hafa staðið til. Áætlað er að starfsmaðurinn verði á landinu í tvo daga en tækjabúnaðurinn í fjórar vikur. Sævar Óli Hjörvarsson framkvæmdastjóri KNH segir sitt fyrirtæki vera búið að borga fyrir þjónustuna, en ekkert hafi heyrst frá fyrirtækinu og því ekki vitað hvenær von er á starfsmanninum og búnaðinum.

„Það tekur fimm til sjö daga fyrir peninga að berast á leiðarenda í gegnum bankakerfið eins og það er í dag. En við fáum ekki einu sinni svör frá fyrirtækinu fyrr en það er búið að telja peningana,“ segir Sævar Óli. Þegar stangirnar í brúna, sem nú þarf að strekkja, voru keyptar af breska fyrirtækinu á síðasta ári, voru þær sendar til landsins áður en þær voru greiddar. Nú er KNH stillt upp við vegg af breska fyrirtækinu, að sögn Sævars Óla. „Það er ekkert traust á Íslendingum í dag. Ísland er bara algjört núll úti í heimi,“ segir hann.

birgir@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (2 Komment )

  1. Komment skrifaði Hemmi þann 04.07.09 | 11:10

    Hummm eru þessir blessuðu tjallar þeir einu sem kunna að strekkja svo brýr ? Stórlega efa það, enda finnst mér fátt til tjallanna koma. Sem fæst orð um hvað ætti að gera við þá en mæli með því að leitað verði til annara varðandi þennan strekk.

  2. Komment skrifaði Grétar Örn þann 03.07.09 | 18:15

    Þetta eru nú meiri fíflin þessir Bretar, tökum þennan mann þegar og ef hann kemur og heimtum staðgreiðslu fyrir hann þegar hann þarf að fara aftur til Bretlands. Ef ekki verður borgað að þá er um að gera að steipa hann í brúnna. Bretland er NÚLL á Íslandi!

Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli