Frétt

Margir hafa áhuga á BMW hjólum.
Margir hafa áhuga á BMW hjólum.

bb.is | 28.05.2009 | 13:59BMW mótorhjólaklúbbfélagar heimsækja Vestfirði

Nokkrir félagar í BMW mótorhjólaklúbbnum á Íslandi heimsækja Vestfirðina um hvítasunnuhelgina. Þeir leggja af stað frá Reykjavík á föstudag og fara til baka á mánudag. „Um það bil tíu félagar taka þátt í þessari ferð sem farin er á BMW GS hjólum, en þau henta vel til ferðalaga bæði á vegum með bundnu slitlagi sem og malarvegum og jafnvel í slóðaakstur, og Vestfirðir eru mjög spennandi svæði að fara um“, segir Hilmar Jónsson, félagi í klúbbnum. BMW mótorhjólaklúbburinn leggur mikla áherslu á ferðamennsku og virðingu fyrir landinu og að farið sé að reglum þar um.

Hópurinn mun halda til á Bíldudal þessa daga og hjóla þar út frá. „Við fáum góðar móttökur hjá mótorhjólaklúbbnum Þeysi á Patreksfirði á laugardeginum“, segir Hilmar. Þá mun hópurinn heimsækja bóndann Þorvald Stefánsson í Otradal, en hann var með þeim fyrstu hér á landi sem eignaðist BMW GS hjól og hefur mikla reynslu í hjólamennsku. Hilmar og félagar sínum hvetja áhugamenn um mótorhjól að kíkja á hjólin þeirra og í spjall.

Klúbburinn skipuleggur nokkrar ferðir um Ísland ár hvert, bæði dagsferðir og lengri ferðir. „Þessi ferð er fyrsta langa ferðin okkar í ár en í byrjun júlí verður farið í Jökulheima og í ágúst norður Sprengisand og norðausturlandið skoðað“, segir Hilmar.

BMW mótorhjólaklúbburinn á Íslandi er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á BMW hjólamennsku. Heimasíða klúbbsins er: www.bmwhjol.is.

thelma@bb.is



Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli