bb.is | 27.04.2009 | 14:14Kaffihús vegna Listar án landamæra
Kaffihús verður opnað á Ísafirði í tengslum við List án landamæra dagana 27. apríl til 2. maí 2009. Kaffihúsið verður í Aðalstræti 24, þar sem leikfangaverslunin Bimbó var til húsa, og verður opið frá kl. 14 til 18. Kaffiveitingar verða á vægu verði. Hátíðin List án landamæra er haldin árlega á Íslandi og er markmið hennar að fatlað og ófatlað fólk sameinist í listinni, að ólíkir hópar vinni saman og leiði þannig til aukins skilnings milli fólks, samfélaginu til góðs. Ýmsir munir verða til sölu og sýnis. Má þar nefna málverk, handgerð kerti, gler-, leir- og mósaikverk. Gestir geta einnig tekið þátt í að búa til listaverk á staðnum.birgir@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.