bb.is | 22.04.2009 | 13:10Ísafjarðarbær fékk fimm milljónir
Eitt hundrað milljónum króna hefur verið úthlutað til fjörutíu ferðaþjónustuverkefna um allt land, samkvæmt vef iðnaðarráðuneytisins. Alls bárust 210 umsóknir um styrkina. Þjónustuhús við Akureyrarhöfn fékk hæsta styrkinn, 11 milljónir króna. Ísafjarðarbær fékk fimm milljónir króna fyrir þjónustuhús á hjólum, Sjóræningjahúsið á Patreksfirði fékk tvær og hálfa milljón og Skrímslasetrið á Bíldudal eina milljón króna. Styrkirnir eru fjármagnaðir af byggðaáætlun og er þeim ætlað að renna frekari stoðum undir uppbyggingu atvinnugreinarinnar á landsbyggðinni.
birgir@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.