mbl.is | 29.07.2008 | 09:06Fann Mel Gibson kúluna sína?
Það hefur varla farið framhjá mörgum að stórleikarinn Mel Gibson er staddur hér á landi. Þannig fjallaði DV ítarlega um heimsókn kappans í gær og birti forsíðumyndir af honum í golfi undir hinni mergjuðu fyrirsögn „Týndi kúlunni“.Þá hafa fjölmiðlar lagt þunga áherslu á það hversu alþýðlegur Gibson hefur verið í heimsókn sinni og laus við stjörnustæla. Slík hegðun hefur ekki þótt sérlega fréttnæm hingað til, en Gibson hefur meðal annars komist í fréttirnar vestanhafs fyrir ölvunarakstur og meint Gyðingahatur.
Annars mun Gibson hafa haft það mjög gott hér á landi, en hann fór ásamt sonum sínum tveimur á Þingvelli, Gullfoss og Geysi á sunnudaginn undir öruggri leiðsögn Hinriks Ólafssonar leikara. Gibson heldur svo af landi brott á morgun.
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.