Frétt

Búið er að leggja stíg að Seljalandsfossi. Mynd: bildudalur.is.
Búið er að leggja stíg að Seljalandsfossi. Mynd: bildudalur.is.

bb.is | 06.06.2008 | 09:58Seeds lætur gott af sér leiða á Bíldudal

Hópur sjálfboðaliða hefur verið að störfum á Bíldudal síðustu daga á vegum SEEDS, (See beyond borders), sem eru alþjóðleg samtök sem vilja stuðla að auknum skilningi fólks á náttúru og umhverfi og samskiptum ólíkra þjóða og menningar. Hópurinn hefur unnið að ýmsum verkefnum, meðal annars við að gera göngustíga í skógræktinni fram í dal. „Svæðið er afar fallegt og má með sanni segja að þarna leynist náttúruperla sem vert er að skoða. Nú er búið að leggja stíg að Seljalandsfossi og laga aðra stíga sem liggja í gegnum skógin. Tilvalið er að fá sér gönguferð þarna og njóta óviðjafnanlegrar náttúrufegurðar“, segir á bildudalur.is.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli