bb.is | 23.04.2008 | 16:05Á þriðja tug ungra skákmanna á landsmóti í Bolungarvík
Landsmótið í skólaskák fer fram í Bolungarvík dagana 24.- 27.apríl. Keppt er í yngri flokki sem í eru nemendur í 1.-7.bekk og eldri flokki sem í eru nemendur í 8.-10. bekk. Teflt verður í Grunnskólanum í Bolungarvík og verður mótið sett kl. 13 á morgun. Tefldar verða 11 umferðir í hvorum flokki og lýkur mótinu á sunnudag. Áhorfendur eru velkomnir og verður heitt á könnunni og skákborð uppi. Nánari upplýsingar um dagskrá er hægt að nálgast á vef Taflfélags Bolungarvíkur, en teflt verður frá morgni fram að kvöldmat alla daga. Eftir skóla-, sýslu- og kjördæmamót hafa eftirfarandi krakkar unnið sér rétt til að þátttöku (skákstig í sviga):Yngri flokkur:
Hulda Rún Finnbogadóttir
Ingólfur Daði Guðvarðarson
Daði Arnarsson
Mikael Jóhann Karlsson (1415)
Emil Sigurðarson
Ólafur Freyr Ólafsson (1155)
Birkir Karl Sigurðsson (1290)
Friðrik Þjálfi Stefánsson (1455)
Guðmundur Kristinn Lee (1365)
Dagur Andri Friðgeirsson (1695)
Dagur Kjartansson (1320)
Jón Halldór Sigurbjörnsson
Eldri flokkur:
Jóhann Óli Eiðsson (1630)
Arnór Gabríel Elíasson
Páll Sólmundur H. Eydal
Kristinn Justiniano Snjólfsson
Magnús Víðisson
Nökkvi Sverrisson (1545)
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1645)
Patrekur Maron Magnússon (1820)
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1865)
Árna Emil Guðmundsson
Hörður Aron Hauksson (1720)
Jökull Jóhannsson (1325)
Á laugardag fer fram opið barna- og unglingaskákmót fyrir vestfirska krakka í 10. bekk og yngri. Mótið byrjar kl 15.30 og lýkur með pizzuveislu kl 18. Verðlaun eru í boði fyrir þrjú fyrstu sætin í 8.-10.bekk, 5.-7.bekk og 4.bekk og yngri. Aðgangur að mótinu er ókeypis og vonast er til að sem flestir mæti. Loks verður opið æfingaskákmót fyrir vestfirska skákmenn kl 13 á sunnudag.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.