Frétt

Ísafjörður er eitt þeirra sveitarfélaga sem myndaði Ísafjarðarbæ við sameiningu árið 1996.
Ísafjörður er eitt þeirra sveitarfélaga sem myndaði Ísafjarðarbæ við sameiningu árið 1996.

bb.is | 04.03.2008 | 11:46Nokkuð jöfn íbúafækkun

Íbúum Ísafjarðarbæjar hefur fækkað nokkuð jafnt og þétt síðasta áratuginn og voru þeir einungis 3.963 þann 1. desember í fyrra, en tíu árum áður voru þeir 4.395. Nemur fækkunin um 10%. Fækkað hefur á öllu tímabilinu nema milli áranna 2003 og 2004 þegar íbúum fjölgaði um 4, og milli áranna 1997 og 1998 þegar þeim fjölgaði um 79, eða 1,8%. Mest var fækkunin milli 1998 og 1999 þegar íbúum sveitarfélagsins fækkaði um 199, sem nemur 4,4% fækkun á einu ári. Milli áranna 2006 og 2007 fækkaði íbúum um 135 eða 3,3%.

halfdan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli