Frétt

Filip Frackowiak, Halina Frackowiak og Barbara Gunnlaugsson á pólsku aðventukvöldi.
Filip Frackowiak, Halina Frackowiak og Barbara Gunnlaugsson á pólsku aðventukvöldi.
Sig. Friðrik Lúðvíksson og Lech Szyszko léku jólalög á gítar og ýmsar tréflautur.
Sig. Friðrik Lúðvíksson og Lech Szyszko léku jólalög á gítar og ýmsar tréflautur.
Aðalræðismaðurinn, Michal Sikorski á spjalli við gesti.
Aðalræðismaðurinn, Michal Sikorski á spjalli við gesti.
Gísli Jón Hjaltason, Jón Sigurpálsson, Michal Sikorski aðalræðismaður og Grétar Jónasson fá sér af hlaðborðinu.
Gísli Jón Hjaltason, Jón Sigurpálsson, Michal Sikorski aðalræðismaður og Grétar Jónasson fá sér af hlaðborðinu.

bb.is | 11.12.2007 | 15:05Hátíðlegt á pólsku aðventukvöldi

Það var hátíðarblær á pólsku aðventukvöldi sem haldið var í fyrsta sinn í gær í Edinborgarhúsinu. Boðið var upp á létt jólahlaðborð á pólska vísu og tónlistardagskráin var vegleg. Meðal þeirra sem komu fram var þekkt söngkona frá Póllandi, Halina Frąckowiak sem söng jólalög ásamt syni sínum Filip. Þau komu til Íslands ásamt undirleikaranum Marcin Riege og héldu tónleika í Gerðubergi og Kristskirkju á Landakoti áður en þau komu til Ísafjarðar. Þá var aðalræðismaður Póllands á Íslandi, Michal Sikorski sérstakur gestur á aðventukvöldinu, en hann hafði fyrr um daginn komið færandi hendi á Bókasafnið á Ísafirði með pólskar bókmenntir í kílóavís.

Barbara Gunnlaugsson, formaður Félags Pólverja á Vestfjörðum er ánægð með móttökurnar sem þessi nýjung fékk. Um 100 manns mættu og voru það bæði Íslendingar og Pólverjar. Aðgangur var ókeypis en litlar fimm hundruð krónur kostaði hlaðborðið. Hún segir að þetta sé byr í seglin fyrir félagið sem stefnir á að halda fleiri slíkar uppákomur á næstunni og vonar að það verði hægt að gera þetta aðventukvöld að hefð. Sikorski aðalræðismaður sagðist tilbúinn til að aðstoða félagið við að fá listamenn frá Póllandi. Dagskráin fór að mestu fram á pólsku, en Barbara segir að það verði reynt að miðla betur upplýsingum til Íslendinga á komandi skemmtunum sem Félag Pólverja á Vestfjörðum stendur fyrir, þó allir Íslendingarnir virðist hafa skemmt sér vel og fundist stemmningin meira „erlendis“ fyrir vikið.

sigridur@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli