Morgunblaðið | 26.10.2007 | 11:13Eyraroddi á Flateyri: Þörf á meiri umsvifum til að anna eftirspurn
Fiskvinnsla er komin vel af stað hjá Eyrarodda hf. á Flateyri. Þar eru 34 starfsmenn sem vinna um 50 tonn af þorskflökum á viku og framkvæmdastjórinn telur þörf á því að auka umsvifin á næstunni vegna mikillar eftirspurnar eftir afurðunum. Eyraroddi hf. hóf vinnslu í byrjun mánaðarins í fiskvinnsluhúsum sem áður voru í eigu Kambs hf. Teitur Björn Einarsson framkvæmdastjóri segir að vel hafi gengið að keyra vinnsluna upp og hún sé nú komin í það horf sem ætlunin var í upphafi. Starfsfólkið vinnur um 12 tonn á dag, söltuð og lausfryst þorskflök fyrir Spánarmarkað. Hann segir að veruleg eftirspurn sé eftir afurðunum. „Við þurfum að bretta upp ermar og auka umsvifin með meiri vinnslu,“ segir hann.Aðspurður segir Teitur að verð afurðanna sé ásættanlegt. Telur hann að stígandi verð helgist meðal annars af minnkandi framboði af þorski frá Íslandi á næstu mánuðum og menn séu að reyna að draga úr áhrifum samdráttarins með hærri verðum. Þá hafa eigendur fyrirtækisins verið að vinna að því að skapa möguleika til að flytja út ferskan fisk með flugi. Teitur Björn segir að sá undirbúningur taki sinn tíma.
Eyraroddi telur sig hafa nægilegt hráefni á næstunni til að auka vinnsluna. Fyrirtækið gerir út einn hraðfiskibát og kaupir fisk á markaði. Teitur Björn segir að vissulega sé lítið framboð af þorski, vegna mikillar áherslu á ýsuveiði og frátafa vestfirskra báta frá veiðum vegna tíðarfarsins. Segir hann að einnig sé verið að athuga með möguleika á að afla hráefnis annars staðar frá.
Þótt umfang vinnslunnar sé samkvæmt áætlun er langt frá því að hún sé jafn mikil og hún var hjá fyrri eiganda fiskvinnsluhúsanna. Kambur var með 80 manns að vinna 8-9 þúsund tonn á ári. Teitur Björn segir stefnt að því að Eyraroddi vinni 2500 til 3000 tonn á fyrstu tólf mánuðum fyrirtækisins. Frá þessu segir í Morgunblaðinu í dag.
gunnaratli@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.