bb.is | 02.08.2007 | 16:36Grímur Atlason: Ummæli ráðherra bera vott um vanþekkingu
Grímur Atlason, bæjarstjóri Bolungarvíkur, segir ummæli Árna Mathiesen fjármálaráðherra um að sveitarfélögin fái hlutdeild í fjármagnstekjuskatti beri vott um vanþekkingu. Árni sagði þær hugmyndir með öllu fráleitar og sagði engin áform uppi um slíkt. „Tekjur ríkisins hafa verið að aukast. Á milli ára jukust tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti um 15 prósent og af fjármagnstekjum um 33 prósent. Það er í sjálfu sér hið besta mál en sveitarfélögin eiga að fá sinn skerf“, segir Grímur. Hann nefnir sem dæmi að sex af tíu gjaldahæstu mönnum Vestfjarða búi í Bolungarvík og borgi alls 120 milljónir til ríkisins án þess að bæjarsjóður Bolungarvíkur fái neitt. Grímur segir ummæli Árna ekki þýða endalok þessa máls. „Hann stjórnar ekki einn. Ég á eftir að heyra í fleiri ráðherrum. Samband íslenskra sveitarfélaga er í stöðugum viðræðum við ríkið en samkomulagið sem var gert í vetur er plástur í stuttan tíma.“ Grímur segir þetta snúast um einkahlutafélagavæðinguna. Á einni nóttu urðu til fjöldinn allur af einkahlutafélögum og menn sem áður greiddur tekjuskatt fóru að greiða fjármagnstekjuskatt. Við þetta urðu sveitarfélögin af miklum tekjum.Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, telur það óvitlausa hugmynd að sveitarfélögin fái hlutdeild í fjármagnstekjuskatti og hefur lýst sig tilbúinn til að skoða málið. Árni hafði um það að segja að „Gunnar hefði setið lengi hinum megin við borðið sem sveitarstjórnarmaður í Hafnarfirði, og hann væri greinilega enn þeim megin við borðið“, svo vitnað sé beint í Fréttablaðið. Grímur segir þetta vera ómaklega skotið hjá Árna og lýsa einhverju allt öðru en skilningi á málefnum sveitarfélaganna.
„Líklega hefur Árni setið of lengi þeim megin við borðið þar sem hann situr. Skilningur hans á stöðu sveitarfélaganna ber því vitni“ segir Grímur.
smari@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.