Frétt

Snyrtistofan Díva.
Snyrtistofan Díva.

bb.is | 10.07.2007 | 11:09Díva opnar nýja vefsíðu

Snyrtistofan Díva á Ísafirði opnar nýja vefsíðu í dag á slóðinni diva.is. Kristrún Sif Gunnarsdóttir, snyrtifræðingur og eigandi Dívu, segir að á síðunni megi finna upplýsingar um allar meðferðir sem eru í boði á stofunni, verðskrá og ýmislegt fleira. Mest um vert er þó nýtt pöntunarkerfi sem komið hefur verið upp á síðunni. Þar geta viðskiptavinir sjálfir pantað sér tíma á netinu, sem kemur til með að spara bæði tíma og fyrirhöfn. Kristrún segir að áfram verði þó að sjálfsögðu tekið á móti pöntunum í gegnum síma fyrir þá sem vilja og hafa ekki aðgang að Internetinu.

tinna@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli