Frétt

Ragnar Jörundsson, Úlfar B. Thoroddsen, Þuríður G. Ingimundardóttir og Arnheiður Jónsdóttir formaður bæjarráðs við opnun nýrrar heimasíðu Vesturbyggðar í morgun. Mynd: Bríet Arnardóttir.
Ragnar Jörundsson, Úlfar B. Thoroddsen, Þuríður G. Ingimundardóttir og Arnheiður Jónsdóttir formaður bæjarráðs við opnun nýrrar heimasíðu Vesturbyggðar í morgun. Mynd: Bríet Arnardóttir.

bb.is | 10.07.2007 | 10:46Vesturbyggð opnar nýja heimasíðu

Vesturbyggð opnaði nýja heimasíðu formlega á bæjarráðsfundi í dag. Heimasíðan hefur verið í smíðum undanfarnar fjórar vikur og er notast við Snerpill vefumsjónarkerfi frá Snerpu á Ísafirði. Aðalhönnuður síðunnar er Ágúst Atlason, margmiðlunarhönnuður hjá Snerpu. „Stefnan er að heimasíða Vesturbyggðar verði lifandi og upplýsingar um það sem er að gerast í sveitarfélaginu verði aðgengilegar. Meðal þess sem er nýtt á þessari heimasíðu er t.d. gott atburðadagatal þar sem félagasamtök geta komið inn upplýsingum um atburði með góðum fyrirvara til ritstjóra og vefdagbækur þar sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúar geta skrifað um það sem þeim liggur á hjarta hverju sinni“, segir á vesturbyggd.is en þar kemur einnig fram að það sé von starfsfólks bæjarskrifstofu að þessi nýja heimasíða gagnist íbúum Vesturbyggðar og öðrum sem hana skoða.

Þegar er búið að setja töluvert af efni inn á heimasíðuna og verður unnið að því áfram. Gagnasafn með fundargerðum mun svo stækka jafnt og þétt á næstu vikum. Gott myndasafn er þegar komið inn á síðuna og má þar nefna myndir frá sjómannadeginum, 17. júní og Bíldudals grænum. Einnig er safn mynda frá ljósmyndaranum Mats Wibe Lund á síðunni.

Fyrirtæki og ferðaþjónustuaðilar eiga líka sinn sess á heimasíðunni og eru forsvarsmenn þeirra hvattir til að senda upplýsingar um fyrirtæki sín til ritstjóra.

thelma@bb.is

Heimasíða Vesturbyggðar

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli