bb.is | 26.06.2007 | 15:39Heilsuefling og JCI standa fyrir fjallapassaleik
Heilsuefling í Ísafjarðarbæ og JCI félagar á Vestfjörðum hafa tekið höndum saman og standa í sumar fyrir svokölluðum fjallapassaleik. Leikurinn hefur það að markmiði að hvetja einstaklinga og fjölskyldur til að nýta sér þær leiðir til heilsueflingar sem felast í náttúrunni í kringum okkur, eins og segir í tilkynningu. Með þátttöku í skemmtilegum leik finnur hver og einn fjall við sitt hæfi til að klífa og efla um leið líkamlegt og andlegt þrek.Gefnir hafa verið út tvenns konar passar í leiknum. Annars vegar passinn Fjölskyldan á fjall, sem er með myndum og upplýsingum um þrjár auðveldar gönguleiðir, sem allir í fjölskyldunni ættu að ráða við. Leiðirnar sem valdar voru eru upp í Naustahvilft, á Miðfell og Hnífa. Hins vegar er það passinn Sigraðu sjálfan þig sem, eins og nafnið bendir til, er með erfiðari gönguleiðum. Leiðirnar eru upp á Gleiðarhjalla, Kubba og Búrfell.
Þá er leikurinn sjálfur tvíþættur. Í fyrsta lagi stimpilleikur sem gengur út á að þegar á leiðarenda er komið stimpla göngugarparnir í passann sinn með stimplum sem verða í kössum eða vörðum uppi á fjöllunum. Þegar búið er að klífa öll fjöllin þrjú í þeim passa sem viðkomandi hefur valið, er passanum skilað inn. Nöfn heppinna göngugarpa verða dregin úr potti í lok sumars og munu þeir hljóta vegleg verðlaun. Í öðru lagi er myndaleikur, þar sem viðkomandi sendir inn skemmtilega mynd af sér eða samferðamönnum sínum uppi á einu fjallinu. Myndirnar verða birtar á heimasíðu leiksins, og í lok sumars verða frumlegustu og skemmtilegustu myndirnar valdar og myndasmiðirnir verðlaunaðir. Jafnframt verður sú mynd sem fær bestu ummælin af lesendum heimasíðunnar verðlaunuð.
Leikurinn hófst formlega föstudaginn 22. júní með Sólstöðugöngu JCI-Vestfjarða upp á Miðfell og mun hann standa til 10. september. Dregið verður úr innsendum pössum í stimpilleiknum og kynnt hvaða innsendu myndir dómnefnd hefur valið að verðlauna í myndaleiknum, í beinni útsendingu Svæðisútvarps Vestfjarða föstudaginn 14. september. Passana er hægt að nálgast á eftirtöldum stöðum: Hamraborg, Upplýsingamiðstöð Ísafjarðar, Hótel Ísafirði, sundlaugum Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur, og bensínstöðvunum í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík, Súðavík, Patreksfirði og á Hólmavík.
Frekari upplýsingar um fjallapassann má finna hér.
tinna@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.